Velkomin á vef Áss vinnustofu
Í Ási vinnustofu er lögð áhersla að skapa fólki með skerta starfsgetu vinnuaðstöðu sem sniðin er að þörfum og getur hvers og eins. Áhersla er lögð á að efla sjálfsöryggi einstaklingsins og starfshæfni með það að markmiði að starfa á almennum vinnumarkaði.
Starfsemi:
Saumastofa
Ás vinnustofa hefur séð um sníðingu, saumaskap, pökkun og frágang á ýmsum gerðum heimilisklúta ásamt handklæðum, hárklæðum og bleium. Vörur þessar er hægt að nálgast í Ási vinnustofu og Rekstravörum að Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík.
Endurskinsmerki
Ás vinnustofa sér um framleiðslu og dreifingu á endurskinsmerkjum. Þau er hægt að nálgast í Ási og í flestum apótekum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.
Pökkun
Ás vinnustofa tekur að sér alhliðar pökkunarvinnu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Boðið er uppá plastpökkun í vélum en einnig er ýmsu handpakkað t.d tímaritum og geisladiskum. Einnig sér Ás vinnustofa um límmerkingar fyrir ýmiss fyrirtæki.
Ás vinnustofa er opinn alla virka daga vikunnar frá kl. 9.00 - 16.00.
Ás vinnustofa - Brautarholti 6 - 105 Reykjavík - Kt. 461081-0109 - S. 414 0530
|