Þessi síða í ham fyrir sjónskertaSenda þessa síðuPrenta þessa síðuVeftréGera hlutverk.is að upphafssíðu
Velkomin á vef Áss vinnustofu

 

Í Ási vinnustofu er lögð áhersla að skapa fólki með skerta starfsgetu vinnuaðstöðu sem sniðin er að þörfum og getur hvers og eins.  Áhersla er lögð á að efla sjálfsöryggi einstaklingsins og starfshæfni með það að markmiði að starfa á almennum vinnumarkaði.

 

Starfsemi:

Saumastofa

Ás vinnustofa hefur séð um sníðingu, saumaskap, pökkun og frágang á ýmsum gerðum heimilisklúta ásamt handklæðum, hárklæðum og bleium.  Vörur þessar er hægt að nálgast í Ási vinnustofu og Rekstravörum að Réttarhálsi 2, 110 Reykjavík.

Endurskinsmerki

Ás vinnustofa sér um framleiðslu og dreifingu á endurskinsmerkjum.  Þau er hægt að nálgast í Ási og í flestum apótekum, bæði á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni.

Pökkun

Ás vinnustofa tekur að sér alhliðar pökkunarvinnu fyrir fyrirtæki og stofnanir. Boðið er uppá plastpökkun í vélum en einnig er ýmsu handpakkað t.d tímaritum og geisladiskum.  Einnig sér Ás vinnustofa um límmerkingar fyrir ýmiss fyrirtæki.

 

Ás vinnustofa er opinn alla virka daga vikunnar frá kl. 9.00 - 16.00.  

Ás vinnustofa - Brautarholti 6 - 105 Reykjavík - Kt. 461081-0109 - S. 414 0530

Ás vinnustofa - Brautarholti 4-6 - 101 Reykjavík - Sími 414 0530